sarabjork.bloggar.is
orðabók konunnar!!!Sara Björk Sigurgísladóttir
Jæja komið að smá leiðbeiningum fyrir menn í vanda og þá sem skilja ekki alltaf hug kvenna:)
Kvennamál:
Já = Nei
Nei = Já
Kannski = Nei
Mér þykir það leitt = Þér mun þykja það leitt
Við þurfum = Ég vil
Það er þín ákvörðun = Þú munt gjalda fyrir þetta seinna
Við þurfum að tala saman = Ég þarf að kvarta
Gjörðu svo vel = Ég vil það ekki
Ég er ekki í uppnámi = Auðvitað er ég í uppnámi fíflið þitt!
Það er naumast þú ert elskulegur í kvöld = Hugsaru ekki um annað en kynlíf?
Elskaru mig? = Ég er að fara að biðja þig um eitthvað dýrt
Hversu heitt elskaru mig? = Ég gerði dálítið sem þér mun alls ekki líka
Þú verður að læra að tjá þig = Vertu bara sammála mér
Ertu að hlusta á mig?! (Of seint, þú ert dauður)
Ekkert = Allt
Ekkert, í alvöru = Það er bara að þú ert svoddan fífl
vona að þetta komi að notum!
útskrifin yfirstaðin og alvaran teking viðSara Björk Sigurgísladóttir
Jamm og jæja ætli maður sé ekki orðinn stúdent frá þeim háttvirta Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Þetta er eitthvað sem maður upplifir aðeins einu sinni á ævinni og var heldur betur tilfinningaþrungin stund sem lifir í hjarta manns að eilífu......eða bara ekki. Man bara eftir því að hafa sprett upp stigann upp á sviðið fengið blað, handartak og bækur og skokkað svo í sætið...sett upp húfuna og farið á fyllerí um kvöldið. Ágætis dagur alveg hreint!!En núna er alvaran sko tekin við, vinna vinna vinna. Ég hélt að sá dagur myndi ekki renna upp að ég færi að vinna aftur sem þjónn á Fosshótel Áningu en allt kom fyrir ekki. Ég lifði allavega af fyrsta daginn og er þá vongóð á að sumarið tussist. Við Sigurlaug Lilja erum gott team frá fyrra ári og reynum að massa þetta ásamt góðum hópi nýbakaðra starfsmanna ÁningarJ
Ælti kella sé svo ekki komin með nýja myndasíðu á facebook.com
Alltaf er manni að fara fram hvað tölvutæknina varða.
Kveðja upprennandi tölvunörd
ÍtaluferðSara Björk Sigurgísladóttir
jæja þá er maður kominn heim á klakann, búin í reisu minni um stígvélið ásamt honum Sigurjóni. Ferðin heppnaðist að öllu leyti vel, skelltum okkur í þriggja daga ferð til Galipoli og dagsferð til Grotte de Castellana og Alberobello. Heppnin var með okkur hvað veðrið varðar, enda ekki ský á himni allan tímann og um 35° þegar heitast var.Ítalirnir voru greinilega búnir að undirbúa komu okkar í Galipoli og fengum við heilt hótel útaf fyrir okkur með sundlaug og líkamsrækt, enda ekki við öðru að búast þegar hefðarfólk mætir á staðinn. Paolo (einkaþjónn okkar á hótelinu) var líka duglegur við að dekra við okkur, reddaði okkur 2 alveg ágætis farartækjum sem við nýttum í botn, fjallahjólin klikka ekki!! Það var ræs snemma á hverjum morgni, farið í bæði hjólatúr og tekið nokkur sundtök, aldrei slegið slöku við!! nýjar myndir komnar inn :)
Úff ein vika og svo chillSara Björk Sigurgísladóttir
Jæja þá er komið að síðust vinnuvikunni, 7 dagar eftir og svo tekur við 3ja vikna ferðalag og skemmtilegheitJ
Það er ekki mikið búið að gerast hérna undanfarna daga, Fanný skellti sér heim á klakann í viku og skildi mig eftir eina og yfirgefna. Hún kom reyndar heim í gær, hlaðin íslensku nammi, ostum, graflaxi og pítusósu…bara helst nauðsynjar.
Hótelið mitt virðist vera soltið short on staff at the mom. þar sem ég er að vinna eins og brjálæðingur. Búin að vakna kl 5 á morgnanna 11 daga í röð og á alla þessa vikuna eftir. Þetta á ekki að vera leyfilegt!!!! En þar sem að ég er í svo miklu uppáhaldi hjá 50 ára filipíska hommayfirmanninum mínum honum Ben Santiago að þá ákvað hann að gefa mér bara ekkert frí í tæpar 3 vikur. Indælisnáungi (not) sem nýtur þess að segja fuck og bitch í öðru hverju orði og slá staffið með teyju í rassgatið ef það er ekki á 100% hraða.
Maður er loksins búið að panta miðana heim, kominn tími til. Verð í London 4 Maí, Ítalíu 6 Maí og á Íslandinu þann 17 Maí….sweeeeet.
C u soon
ferðalag foreldranna yfir hafiðSara Björk Sigurgísladóttir
Eins og margir eflaust vita skelltu mútta og pabbi sér í ferð yfir hafið til að kíkja á litla afkvæmið í útlöndunum. Heldur betur stuð að fá þau gömlu í heimsókn.
Byrjaði nú hálf bjánalega þar sem að þeim datt í hug að fara úr lestinni einum of snemma og lentu í næsta bæ við Bournemouth. Ekki beint skemmtileg tilhugsun að hafa þau ráfandi um á miðnætti í óþekktum bæ túristalega klædd. En englandsbúinn náði nú að redda þeim á réttan stað með því að kippa í nokkra spotta.
Það var margt og mikið gert, skelltum okkur til Poole í verslunarleiðangur og svo sýndi ég þeim Bournemouth. Síðan gerðum við okkur góðan dag og sáum Stonehenge í þvílíkri blíðu, alveg frábær staður lengst út í rassgati.
Mér fannst það nú best samt að fá loksins almennilegan íslenskan heimilismat al la lolla. jammi!! Það var nú samt skipst á að hafa íslenskan og enskan mat þar sem að mútta og Matt skiptu eldhúsverkunum niður.
Nú er kella bara komin í 3ja daga frí og hef ég hugsað mér að nýta þann tíma á ströndinni þar sem að það er búið að vera snilldar veður undanfarna daga.
bestu kveðjur til snjóbúanna.
Bath, Isle of wight og PooleSara Björk Sigurgísladóttir
Já það er búið að vera smá heyfing á manni undanfarnar vikur.
Fyrsta ferð- lestin til Bath
Ferðin okkar Fannýar til Bath heppnaðist alveg frábærlega. Ákváðum að breyta aðeins planinu á miðri leið og fara til Salisbury...svona úr því að við vorum komnar á þetta ferðalag. Við vorum í smá vafa um hvort að við værum í réttu lestinni þar sem að þetta tók aðeins lengir tíma en áætlað var. Við komumst svo loks á leiðarenda, skelltum okkur í rómverjalaug, nunnuklaustur og einhver hringhús sem eiga að vera fræg fyrir ég veit ekki hvað. Allavega...skemmtileg ferð og fyrir áhugasama blogglesendur eru nokkrar myndir á síðunni hennar Fannýar.
Önnur ferð - Báturinn til Isle of Wigth
Maður er líka búinn að ferðast yfir höfin hér í Uk. Fór um daginn með Marte (hollenskur vinnufélagi) til eyju hérna í nágrenninu. Þessi eyja mun vera dvalarstaður fræga og ríka fólksins í Bretlandinu yfir sumartímann, eða svo segja þeir. Mér leið eins og algjöru unglambi þarna, af mínu auga að dæma var meðalaldurinn á þessu svæði um sjötugt. Já leiðir unga fólksins í dag liggur greinilega ekki á slóðir náttúfufegurðar og menningarstaða. Við létum þetta nú ekki á okkur fá og nutum þess bara að spretta framúr hjólastólagenginu.
Þriðja ferð - bussinn til Poole
í fyrradag lá leið okkar Fannýar og Matts til Poole. We were on a mission, áváðum að skella okkur í almenningssundlaug í fyrsta sinn síðan við komum til Bournemouth. Það var heldur betur óvenjuleg upplifun, þar sem að sundlaugin var með sameiginlega klefa fyrir bæði kynin. Soltið spes í fyrstu en þetta vandist með tímanum, hef samt aldrei farið í sturtu með svona morgum köllum á sama tíma.
Já maður er alltaf að læra eitthvað nýttJ
Planið er svo að fara í smá ferðalag um helgina líka, Fanný verður því miður að vinna þannig að ég skelli mér bara ein með englendingunum. Man ekki alveg hvert við erum að fara en það er nú bara aukaatriði…..þetta er einhverstaðar í mið Englandi!!!!
Jæja tími til að gera e-ð að vitiJ
C yah
Allt að gerast í Englandinu um þessar mundir!!!Sara Björk Sigurgísladóttir
Vinnan er alveg farin að borga sig núna, var ein að þjóna fyrrverandi borgarstjóranum í Bournemouth og familíunni hans um daginn. Frúin hans átti áttræðis afmæli og ákvað að slá til smá samkvæmis á Menzies, kella leit nú ekki út fyrir að vera nema um sextugt!!
Hún var svo yfir sig spennt að hafa íslenskan þjón að hún vildi ólm fá mig í heimsókn heim til hennar við tækifæri og fékk heimilisfangið mitt og aðrar persónuupplýsingar. Ég er nú ekki beint þessi posh person en það er aldrei að vita nema að ég slái til og njóti þess að vera snobb í nokkra tíma.
Annað í fréttum er að Jóli litli er ætlar að yfirgefa frænku sína á miðvikudaginn og halda á vit ævintýranna í Lyme Regis. Prógramminu hans var flýtt um 2 vikur þannig að tíminn hans í Bournemouth styttist um helming. Hans verður sárt saknað í edamennskunni og videokvöldunum!!!
Slæmu fréttirnar eru þær að það er byrjað að snjóa!!!!
Við Jóel og Mi vorum í okkar daglegu kvöldgöngu áðan að leita að B&B fyrir þau gömlu þegar hvítir kaldir kögglar réðust á okkur, eins og elding úr heiðskýru lofti!! Hræðileg lífsreynsla…sérstaklega fyrir Mi sem var bara á sandölum, en fyrir Íslenku víkingana var þetta nú bara smáræði.
Ég er komin í 2ja daga frí núna og ætla því að skella mér til Bath á morgun með Fanný..ja eða það er allavega planið eins og erJ Við ætlum að túristast smá áður en páskatörnin hefst.
Jæja tími til að fara í háttin,,,ræs snemma á morgunJ
íslendingum fjölgar í BournemouthSara Björk Sigurgísladóttir
Það eru heldur betur búnir að vera blíðir dagarnir hérna í Bournemouth undanfarið.
-Jóli litli kominn og ætlar að vera í 3 vikur, alltaf gaman að hafa litla frænda nálægt! Við erum búin að eiga smá quality time hérna saman…….versla, tjútta, labba á ströndinni og baka skonsur.
-Svo fékk ég nú heldur betur skemmtilega heimsókn um daginn þegar Rannveig og Svala kíktu við svona rétt áður en þær héldu til Kína. Tókum nokkru salsaspor á Bar so og ýmislegt annað…það var nú alveg líkamsrækt útaf fyrir sig skal ég segja ykkur.
-Vinnan gengur sinn vanagang, pólverjarnir sem ég er að vinna með eru alveg æstir í að læra íslenskuna. Ég geri mitt besta til að kenna þeim undirstöðuatirðin þannig að alltaf þegar ég mæti þeim núna öskra þau annaðhvort FLATBAKA !!!eða SMOKKUR!!!!!!!
Já já smá saga á bak við þetta sem ég held ég fari ekkert nánar út í.
-jamm life is good at the moment, þó að heilsan mætti vera aðeins skárri. Krækti mér í netta sýkingu í hægra lungað og smá bráðaofnæmi…..en það er ekkert sem að íslenski víkingurinn höndlar ekki með smá hjálp frá doksa!!!
Kveð að sinni, nokkrar myndir komnar inn frá nýlegum viðburðum J
The devil’s cake and ChristchurchSara Björk Sigurgísladóttir
Jæja það er búið að vera ósköp rólegt hérna í Englandinu undanfarna daga. Kellan búin að vera í 4 dara fríi og heldur betur búin að njóta þess. Skelltum okkur til Christchurch í geggjuðu veðri og skoðuðum kirkjur og rústir frá miðöldum. Mér fannst nú reyndar skemmtilegra að leika við svanina og endurnar í sýkinni heldur en að skoða sjálfa kirkjuna.
Ég og Fanný erum orðnar meðlimir í kokkagengi Bournemouth, búnar að kynnast svo mikið af kokkum undanfarnar vikur að ég held við þurfum ekkert að hugsa um eldamennsku það sem eftir er af dvölinni. Í tilefni af bjórdegi íslendinga í gær voru eldaðar kjúllabringur með öllu meðfylgjandi. Ég gæti alveg vanist þessu, sat bara á rassinum með cranberry juice og horfði á kokksa redda þessu.
En jæja það er komið að því að skella kreminu á djöflakökuna….við fundum ekkert skárra að gera en að baka köku í tilefni þess að það sé kominn 2.mars.
Svo ef fólki er farið að hungra í fleiri myndir er Fanny nú duglegri við að setja þær á síðuna hjá sér!!!!
Sara *out*
Flúði úr kirkjuathöfn kínafólksins!!Sara Björk Sigurgísladóttir
Já þetta er nú meiri sunnudagurinn, planið var nú að taka því ósköp rólega en allt kom fyrir ekki. Ég komst að því að þýsk/brasilíska stelpan sem ég er stundum með er soltið trúuð. Ég hef ekkert á móti trúuðu fólki en mér finnst agalega pirrandi þegar það er verið að þröngva manni í einhverjar kristilegar athafnir.Ekki veit ég hvernig henni tókst að sannfæra mig en allavega enduðum við í kirkju fullri af kínafólki að fagna nýja kína árinu. Það versta var að hver og einn nýr “meðlimur kirkjunnar” (eins og þau vilja kalla fólkið sem labbar þarna inn í fyrsta sinn) þurfti að standa frammi fyrir öllum og kynna sig. Já það var sko ekki nóg að segja bara nafnið sitt heldur vildi lýðurinn fá að analysa mann almennilega….nafn, aldur, þjóðerni, markverður hlutur í lífi manns, bla bla bla
Svo var klappað fyrir hverjum og einum….I felt so special !!Athöfnin sjálf var ekki svo slæm, sungið á kínversku, beðið á kínversku, predikað á kínversku og svo dansað á kínversku (fór ekki milli mála að þarna væri um kíverskann dans að ræða). Sem betur fer voru þetta þægilegir kirkjubekkir og enginn tók eftir því hvort maður væri að biðja með lokuð augun eða sofa...en auðvitað var ég að biðja allan tímann.
Þegar korter var eftir af athöfninni minnti presturinn okkur nýja fólkið á veitingarnar í spjallherberginu þar sem öðrum gæfist tækifæri til að analysa mann enn meira.Þá sagði ég stopp og laumaði mér út!!!Er ekki alveg á því að skrá mig í klúbb kristinna kínverja hér í Bournemouth eins og er.
Ójá heldur betur kristinn dagur í lífi mínu......
Ps. hef ekkert á móti kínverjum!